Temms

...und so weiter

6/24/2009

Af skólagöngu og nýbyrjuðu sumri

Prófum lauk fyrir rúmri viku og einkunnir trítluðu inn í gær. Ég get ekki annað en verið sátt með 7,5 og 8 þó að mér finnist það ekki vera neitt sérlega fallegar tölur; málið er nú bara það að ég var fullkomin fáfræðingur í fögunum tveim sem ég nam á um 3 vikum. Það hlýtur að kallast ákveðið afrek, að minnsta kosti ágætis lexía um að geyma ekki alltaf það versta, ekki fresta og reyna að læra á meðan önnin stendur yfir.

Einhvern veginn grunar mig þó að "jafnogþétt" lærdómur víkji fyrir félagslífsskipulagningu, söngtímum, mömmó og almennri leti. When will they ever learn, when will they eeever learn.

Nýbyrjaða sumrið er íslenskt. Það er golað, skýjað, nískt á sól en ágætt engu að síður.





Hve gott það væri að ofn hafa

Ég hef verið ofn-laus í um 3 mánuði. Í fyrstu fann ég ekkert fyrir því, ég hafði þá nýlega eignast belgískt vöfflujárn og uppfyllti bakkelsis-þrár með fljótgerðum vöfflum, prýddum ávöxtum rjóma og súkkulaði. Ég steikti fiskinn eða sauð, pantaði pizzurnar og hugsaði ekkert um lasagna.

Svo fór það að gerast... búðarbrauðin brögðuðust æ meira eins og plast, grænmetislasagne-draumar vöktu mig með tómt hol í maganum, skúffukökur fóru að sveima fyrir augum mér og heimagerðar pizzur urðu það eina sem ég gat hugsað um.

Ég sakna ofnsins míns. Ég les bakarablogg daglega og fletti í gegnum brauðkaflana í uppskriftarbókunum mínum. Maður á það til að vilja það sem maður ekki fær?

5/19/2009

...og sólin sem skín

Þegar sólin skín og vindurinn heldur aftur af sér eins og gerst hefur af viti í 3 daga núna þá verð ég allt í einu ofboðslega sátt við Ísland og draumar um miðjarðarhafið gufa upp. Í þessu blessaða lúxusveðri get ég eytt öllum deginum úti og allt verður svo einfalt. Brynhildur fær að vera léttklædd og pissar í grasið, ég slepp við að dröslast með yfirhafnir hvert sem við förum og ekki spillir það fyrir að við fáum tækifæri til að sanna það að við séum ekki vampírur, þegar smááá roði sprettur fram í kinnar og á bringu.

Hvað er slæmt við veðrið?
*ekki séns að ég sitji og læri (sem er ekki svo gott vegna júníprófa)
*Brynhildur heldur að sólarvarnar-smurning sé aftaka; berst gargandi fyrir lífi sínu þegar kreminu er makað í andlitið á henni


Það er eiginlega ALLT gott við sólina. Vúhú! (sjáið bara hvað geðheilsan verður góð)

5/03/2009

Morgunmatur fyrir einn

5/02/2009

Home Alone

Ég hef ekki verið ein heima í 4 ár. Þetta verður spes.

4/30/2009

Sætasta Hafdís og besta



Hafdís vinkona mín er að útskrifast sem píanóleikari frá Listaháskóla Íslands. Í kvöld kl 20:00 í Salnum, Kópavogi, heldur hún lokatónleika. Ég hlakka til, Hafdís er æði.

Ó fruma



Kinesin er uppáhaldið mitt í þessu myndbandi

4/21/2009

Erfitt er gaman

Ég er að læra um erfitt efni, erfðafræði og frumulíffræði, les það ofurhægt og flest lekur út úr minninu um leið og ég byrja á nýrri málsgrein. Veit ekki hvort taugungar mínir séu óhæfir um að mynda nýjar tengingar þegar þessi viðfangsefni eru annars vegar eða hvað, ég þarf greinilega að leggja mig alla fram. Lisbeth Salander í bókum Stieg Larsson getur horft á texta og munað þá. Hún getur horft á flóknar stærðfræðiformúlur og stjarneðlisfræðidæmi og skilið þau og leyst. Ég væri til í smá svoleiðis töfra núna. Því ég vil svo óskaplega gjarnan að þessi fög festist inni í kollinum, þetta er svo asskoti forvitnilegt og fróðlegt!

Sól, hjól og bjór = núna. Gottgott

4/20/2009

Ása á ál. Stína sá stól.

Ég var að lesa bók. Hún heitir Män som hatar kvinnor. Bókina las ég hratt og örugglega í lotum fyrir svefn, forvitni drífur mann áfram en viðbjóður aftrar manni í lestrinum. Get mælt með bókinni en hún valdur þó vanlíðan... sérstök bók. Ég er almennt lítið fyrir bækur sem valda vanlíðan. Ég opna ekki bækur sem fjalla um hryllilega raunverulega atburði í formi sjálfsævisagna fórnarlamba og ég forðast vandamálasögur.

Les ekki draugasögur og annað spúkí enda yrði það líklega minn endir á lítt geiðveiku brautinni að sökkva mér ofan í slíka heima.

Ég les spennandi fantasíur helst, má alveg vera horror inn á milli svo lengi sem aðstæðurnar eru fjarri raunverulegum heimi. Heimurinn okkar er alveg nógu ógeðslegur eins og hann er, þarf ekkert að nudda mér frekar upp úr því í skáldsögum.